Garðar Svavarsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði. Hann tekur við starfinu af Friðriki Mar Guðmundssyni sem lætur af störfum í haust eftir 19 ára starf, þar af sem framkvæmdastjóri undanfarin 10 ár.

Samhliða því að taka við starfi kaupfélagsstjóra Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. Fáskrúðsfirði mun Garðar flytja með fjölskyldu sína til Fáskrúðsfjarðar en hann er kvæntur Aldísi Önnu Sigurjónsdóttir, náms- og starfsráðgjafa, og eiga þau saman fjögur börn.

Garðar er sjávarútvegsfræðingur að mennt og kemur til félaganna frá Brim hf. þar sem hann hefur starfað í 24 ár, þar af sem forstöðumaður uppsjávarsviðs Brims hf. undanfarinn áratug.

Hann hefur mjög víðtæka reynslu af störfum innan sjávarútvegs en frá því að hann hóf störf í fiskvinnslu á unglingsárum hefur hann gegnt hinum ýmsu störfum á sviði framleiðslu, sölu og markaðsmála.

„Ég vil þakka fyrir það traust og þann stuðning sem ég hef fengið frá starfsfólki og stjórn félaga á liðnum árum. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð saman. Jafnframt er ég þakklátur því að jafn reynslumikill og traustur maður og Garðar Svavarsson taki við keflinu í haust og leiði fyrirtækið inn í nýja tíma,“ segir Friðrik Mar Guðmundsson, fráfarandi framkvæmdastjóri.