Reynir Ingi Árnason hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækinu Expectus.

Expectus var stofnað árið 2009 og sérhæfir sig í rekstrarráðgjöf, stefnumótun og viðskiptagreind.

Hann er með meistarapróf í hagfræði og fjármálum frá Copenhagen Business School og hefur starfað hjá Expectus undanfarin sjö ár. Þar á undan starfaði hann um skeið hjá Deloitte.

Reynir kemur nú í hóp stjórnenda félagsins með Helgu Dögg Björgvinsdóttur rekstrarstjóra og Kristni Má Magnússyni tæknistjóra.

„Ég er í senn ánægður og þakklátur fyrir þetta frábæra tækifæri og það traust sem mér er sýnt og ég er verulega spenntur fyrir þeim verkefnum sem framundan eru. Expectus er mjög öflugt fyrirtæki og ég mun sannarlega njóta góðs af þeim sterka grunni sem forverar mínir í starfi hafa byggt undir reksturinn á undanförnum árum,“ segir Reynir.

Ragnar Þórir Guðgeirsson stjórnarformaður Expectus segir það ánægjulegt að Reynir taki við sem framkvæmdastjóri og hann sé verðugur arftaki Sindra Sigurjónssonar sem nú hefur horfið til annarra starfa.

Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, kemur einnig ný inn í stjórnina. ,,Það er gífurlega verðmætt fyrir þekkingarfyrirtæki eins og okkar að fá Kristínu að borðinu með alla sína reynslu og þekkingu og við hlökkum til að starfa með henni að áframhaldandi vexti fyrirtækisins,” segir Ragnar.