Innviðaráðherra hefur sett Ólaf Árnason, forstöðumann nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun, í embætti forstjóra stofnunarinnar frá 1. september til 31. desember 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir lét af störfum hjá stofnuninni 1. september eftir að hafa sinnt embætti forstjóra Skipulagsstofnunar frá árinu 2013.

Ólafur hefur starfað að skipulagsmálum og umhverfismati síðustu tvo áratugi - innan stjórnsýslunnar, við ráðgjöf, kennslu og rannsóknir. Síðastliðin tvö ár hefur Ólafur starfað sem forstöðumaður nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun og staðgengill forstjóra.

Ólafur er með meistaragráðu í umhverfismati, umhverfisstjórnun og skipulagsmálum frá Oxford Brookes háskóla og MPM gráðu í verkefnisstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.