Renata Blöndal hefur verið ráðin til ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures þar sem hún tekur við stöðu framkvæmdastjóra sölu- og þjónustu.

Renata býr yfir tíu ára reynslu úr tæknigeiranum og kemur til Arctic Adventures frá hugbúnaðarfyrirtækinu PayAnalytics þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri markaðsmála. Áður hefur Renata einnig starfað hjá CCP, Meniga, Landsbankanum og Krónunni þar sem hún bar meðal annars ábyrgð á Snjallverslun Krónunnar.

Renata er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og lauk B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Arctic Adventures:

„Það er mikill ávinningur og styrkur að fá Renötu til liðs við okkur hjá Arctic Adventures. Renata hefur starfað fyrir fjölda framúrskarandi fyrirtækja hérlendis og býr meðal annars yfir mikilli reynslu af þróun og innleiðingu snjalllausna. Við erum sjálf stöðugt að horfa til þess að bæta stafræna upplifun viðskiptavina okkar og viljum auðvelda þeim að skipuleggja ferðir sínar með okkur. Ég sé mikil tækifæri í áframhaldandi nýsköpun í ferðaþjónustu, bæði á Íslandi og á norðurslóðum og er Renata þar af leiðandi mikilvæg viðbót inn í Arctic Adventures teymið.“

Renata Blöndal:

„Arctic Adventures stendur nú á spennandi tímamótum þar sem verið er að byggja upp starfsemi eftir tímabundinn dvala og stefnt er á hraðan vöxt á alþjóðavettvangi. Ferðaþjónustan er lifandi geiri sem á mikið inni þegar kemur að því að nýta tæknina til þess að bæta þjónustuupplifun, sjálfvirknivæða og straumlínulaga ferla. Þá er mikilvægt að vera á tánum og bregðast við breyttum ferðavenjum og samkeppnisumhverfi með aukinni áherslu á sjálfbærni. Ég hlakka mikið til að vinna með þeim öfluga hópi sem starfar hjá Arctic Adventures.“

Arctic Adventures skipuleggur, selur og sér um framkvæmd ferða og afþreyingar og er eitt rótgrónasta ferðaþjónustufyrirtæki landsins sem teygir sögu sína til ársins 1983. Um 200 manns starfa hjá fyrirtækinu, bæði á Íslandi og í Vilnius en fyrirtækið keypti