Simon Shorthose hefur verið ráðinn forstjóri Meniga en hann tekur við starfinu af Georgi Lúðvíkssyni, meðstofnanda Meniga. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu hefur Simon 20 ára reynslu af alþjóðlegum stjórnunarstöðum í hugbúnaðar- og fjármálageiranum en hann starfaði áður sem stjórnandi hjá fjártæknifyrirtækinu Kyriba og hugbúnaðarfyrirtækinu Mambu sem þróar lausnir fyrir banka. Samhliða hefur Simon setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja.

„Meniga er eitt af þeim fyrirtækjum sem vaxið hefur mest á sínu sviði á síðustu árum. Það er mér mikill heiður að taka við sem forstjóri félagsins. Stafræn væðing undanfarinna ára hefur gjörbreytt bankaumhverfinu og Meniga er í fullkominni stöðu til að hjálpa bönkum að takast á við þær breytingar. Það eru virkilega spennandi tækifæri framundan og ég vil þakka Georg fyrir traustið“ segir Simon.

Meniga var stofnað árið 2009 af þeim Georgi Lúðvíkssyni, Ásgeiri Erni Ásgeirssyni og Viggó Ásgeirssyni en Georg hefur gegnt starfi forstjóra síðan þá. Hugbúnaðarlausnir Meniga eru nú notaðar af rúmlega 100 milljónu viðskiptavinum yfir 170 banka um allan heim. Georg verður áfram hluthafi í Meniga og mun styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins.

Georg Lúðvíksson, fráfarandi forstjóri Meniga:

„Eftir 14 spennandi en krefjandi ár hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem forstjóri Meniga. Ég hef fylgst með árangri Simon í stjórnunarstörfum af fyrstu hendi og treysti honum fullkomlega til að leiða fyrirtækið áfram í þeirri alþjóðlegu vegferð sem fyrirtækið hefur verið á undanfarin ár. Félagið hefur vaxið hratt víða um heim og það er mikill fengur að fá svona reynslumikinn stjórnenda til Meniga. Ég þakka vinum, samstarfsfólki og viðskiptavinum Meniga kærlega fyrir þeirra samstarf og traust í mínu starfi sem forstjóri Meniga.“