Þórhallur Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar, hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti sem sérstakur ráðgjafi. Hann mun sinna stjórnendaþjálfun og stjórnendaráðgjöf fyrir viðskiptavini Góðra samskipta.

Þórhallur starfaði um árabil sem ritstjóri Kastljóss, síðar sem dagskrárstjóri RÚV og framkvæmdastjóri framleiðslu hjá Sagafilm - þar sem hann sat einnig í stjórn fyrirtækisins. Síðast var Þórhallur framkvæmdastjóri miðla Sýnar en sagði starfi sínu lausu í byrjun sumars.

Þórhallur og Andrés Jónsson, stofnandi Góðra samskipta, hafa á síðustu árum í sameiningu þjálfað hátt í fimm hundruð stjórnendur í íslensku atvinnulífi, að því er segir í fréttatilkynningu.

Þórhallur lærði leiklist og útskrifaðist síðar með M.A.-gráðu í sjónvarpsþáttagerð frá Goldsmiths-háskólanum í London. Hann er kvæntur Brynju Nordquist og búa þau saman í Vesturbæ Reykjavíkur.

„Það er fengur fyrir viðskiptavini Góðra samskipta að fá aukinn aðgang að dýrmætri innsýn og leiðsögn Þórhalls. Við Þórhallur þekkjumst vel eftir að hafa kennt saman í meira en áratug og þar af fimm ár í MBA-náminu í Háskóla Íslands. Eitt helsta einkenni Þórhalls sem stjórnanda hefur verið að láta aðra skína, finna hæfileikafólk og beita uppbyggilegri endurgjöf við að hjálpa því að uppgötva og þróa sinn stjórnunarstíl. Ég hlakka mikið til að vinna með honum að fleiri slíkum verkefnum á næstunni,“ segir Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta.