Play leitar nú að um 150 flugliðum fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf. Þá leitar félagið einnig að 55 flugmönnum, bæði með og án reynslu. Um er að ræða stærstu ráðningu félagsins í einu vetfangi, að því er kemur fram í tilkynningu.
Í sumar störfuðu um 150 flugliðar og um 70 flugmenn hjá félaginu en ráðningarnar nú eru í takt við enn frekari umsvif Play sem mun taka fjórar nýjar flugvélar í notkun næsta vor. Félagið er nú þegar með sex vélar í rekstri.
Play mun bæði ráða flugliða með og án reynslu. Áhafnir Play hafa vakið athygli um borð og á áfangastöðum félagsins með látlausum og þægilegum einkennisklæðnaði.
Birgir Jónsson, forstjóri Play:
„Nú er rétti tíminn til að manna vélarnar fyrir næsta sumar. Við erum afar stolt af því að við séum að skapa öll þessu nýju störf og ég er vægast sagt spenntur að fá nýtt fólk í PLAY liðið.“