Flugfélagið Play flutti 108.622 farþega í ágúst, samanborið við 109.937 farþega í júlí. Sætanýting í ágúst nam 86,9 prósentum samanborið við 87,9 prósent í júlí og 79,2 prósent í júní.

„Þróunin er áfram sérstaklega jákvæð, sem helgast einkum af tengiflugi Play yfir Atlantshafið á milli áfangastaða í Evrópu og Bandaríkjunum,“ segir í tilkynningu Play. Félagið segir að tengiflugsleiðakerfið sé komið á fullan skrið með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á reksturinn, meðal annars með bættri sætanýtingu og lækkandi einingakostnaði.

„Óhætt er að segja að bókunarstaðan fyrir haustið og veturinn sé góð. Hún er talsvert betri en á sama tíma á síðasta ári.“

Í upphafi mánaðar auglýsti Play eftir um 150 flugliðum og 55 flugmönnum fyrir næsta vor. Verður þetta stærsta ráðning félagsins í einu vetfangi en hún er í takt við stóraukin umsvif PLAY sem mun taka fjórar nýjar flugvélar í notkun næsta vor. Í tilkynningu Play kemur fram að hátt í þúsund manns hafi sótt um.

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Eftir hraða en örugga uppbyggingu með fjölda nýrra áfangastaða, innleiðingu tengiflugsleiðakerfis og móttöku flugvéla er rekstur Play loks kominn í fastar skorður. Viðskiptamódelið er orðið að veruleika. Enn og aftur er ég er sannarlega stoltur af starfsfólki Play sem hefur gert þetta mögulegt. Það eru bjartir tímar framundan og bókunarstaðan er sterk. Fyrir tveimur vikum hófum við miðasölu til Dulles Washington flugvallar sem er lykiláfangastaður í Bandaríkjunum. Þegar í stað var eftirspurnin mikil og bókanir fyrir næsta sumar eru strax umfram væntingar. Stóru verkefnin í vetur er að taka á móti nýjum flugvélum sem bætast við flotann og ráðningar á nýjum áhöfnum.“