Síldarvinnslan hefur hækkað afkomuspá félagsins fyrir árið úr 86-96 milljónum dollara EBITDA hagnaði (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) í 96-105 milljónir dollara EBITDA hagnað. Miðgildi EBITDA afkomuspárinnar hækkar því um 11%.

Hlutabréfaverð Síldavinnslunnar hækkaði um 2,1% í fyrstu viðskiptum dagsins í 120 krónur á hlut og hefur gengi félagsins hækkað um 19,4% á árinu.

„Útgerð og vinnsla hefur almennt gengið vel á árinu en á síðustu mánuðum hafa komið inn óvæntir jákvæðir þættir í reksturinn sem skýra betri afkomu. Má þar nefna að verð á fiskimjöli og lýsi eru betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, auk þess sem afli var ívið meiri,“ segir í tilkynningu frá Síldarvinnslunni.

„Þá var kolmunni veiddur inn á næsta ár eins og heimildir leyfðu en það helgast af mjög sterkum kolmunnakvóta á næsta ári. Einnig var farið til loðnuveiða í desember sem var ekki gert ráð fyrir í áætlunum félagsins. Þessu til viðbótar liggur fyrir að Vísir hf. verður hluti af samstæðuuppgjöri Síldarvinnslunnar hf. frá 1. desember sl. Sveiflur geta verið miklar í sjávarútvegi og ekki einhlítt að ná utan um allar breytur í áætlanagerð,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Bent er á að endanleg niðurstaða geti enn tekið breytingum við vinnslu uppgjörs en félagið hyggst birta endanlega niðurstöðu ársins þann 9. mars næstkomandi.