Alvotech og Advanz Pharma, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Bretlandi, sem markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum, tilkynntu í dag að félögin hafi undirritað nýjan samning um framleiðslu og markaðssetningu fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Eylea (aflibercept).

Eylea er líftæknilyf sem notað er til meðferðar við augnsjúkdómum sem geta leitt til sjóntaps eða blindu, svo sem votri augnbotnahrörnun, sjóndepilsbjúgi og sjónukvilla af völdum sykursýki. Á árinu 2023 námu tekjur af sölu Eylea í Evrópu um 2,9 milljörðum Bandaríkjadala (407 milljörðum króna) samkvæmt upplýsingum frá gagnaveitunni IQVIA.

Alvotech þróar nú AVT06, sem er fyrirhuguð hliðstæða við Eylea í lágum skammti (2 mg) og AVT29 sem er fyrirhuguð hliðstæða við Eylea í háum skammti (8 mg).

„Við metum mikils vaxandi samstarf okkar við Advanz Pharma, sem hófst snemma á síðasta ári og hefur nú verið útvíkkað og nær alls til sjö fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða. Við eigum það sameiginlegt að hafa óbilandi trú á vexti markaðarins fyrir líftæknilyfjahliðstæður og að leggja þunga áherslu á að auka aðgengi sjúklinga að hagkvæmari líftæknilyfjum,“ sagði Anil Okay, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Alvotech.

Samkvæmt samkomulaginu mun Alvotech bera ábyrgð á þróun og framleiðslu á AVT06 og AVT29, en Advanz Pharma verður ábyrgt fyrir því að tryggja markaðsleyfi og sér um sölu og markaðssetningu. Advanz Pharma fer með einkarétt til sölu í Evrópu, að frátöldu Þýskalandi og Frakklandi þar sem félagið fer með sameiginlegan rétt. Samningurinn felur í sér fyrirframgreiðslu til Alvotech og áfangagreiðslur sem tengdar eru árangri í þróun og sölu lyfjanna.

„Við erum spennt að treysta enn sambandið við Alvotech með þessari mikilvægu viðbót. Samstarf félaganna dregur fram einstaka styrkleika hvors aðila fyrir sig og undirstrikar að Advanz Pharma er kjörinn samstarfsaðili til markaðssetningar lyfseðilsskyldra lyfja í Evrópu,“ segir Susanna El-Armale, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs Advanz Pharma.