Yfirtaka olíufélagsins Diamondback Energy inc. Sala á Endeaver Energy Resources er á lokastigi samkvæmt The Wall Street Journal en kaupverðið er sagt vera um það bil 25 milljarðar Bandaríkjadala sem samsvarar um 3.441 milljörðum íslenskra króna.
Samkvæmt heimildarmönnum WSJ er von á því að samrunaviðræðunum ljúki í dag en kaupverðið er greitt að hluta til með reiðufé ásamt hlutabréfum í sameinaða félaginu en hluthafar Diamondback verða meirihlutaeigendur.

Olíufélögin tvö sérhæfa sig í að framleiða olíu úr leirsteini og verður hið sameinaða félag eitt það stærsta sinnar tegundar.
Mikil samþjöppun hefur orðið meðal olíufélaga á síðustu mánuðum en olíurisarnir vestanhafs hafa sérstaklega verið að horfa til þess að stækka í gegnum samruna og yfirtökur eftir methagnað síðustu ár.
Olíurisinn Exxon Mobil keypti í haust Pioneer Natural Resources sem sérhæfir sig í vökvabroti (e. fracking) fyrir um 60 milljarða Bandaríkjadali.
Samruninn var sá stærsti á olíumarkaði síðan Exxon og Mobil runnu saman árið 1999.
Skömmu síðar var tilkynnt að bandaríski olíurisinn Chevron væri að ganga frá kaupum á öllu hlutafé olíufyrirtækinu Hess í skiptum fyrir útgefið hlutafjár í sameinuðu félagi að andvirði 53 milljarða dala.