Helstu hluta­bréfa­vísi­tölur Banda­ríkjanna hafa fallið í fram­virkum samningum í dag eftir að hafa tekið við sér í gær.

Á­kvörðun Moo­dys um að lækka láns­hæfis­mat tíu svæðis­bundinna banka og ellefu lána­stofnana spilar þar stórt hlut­verk en fjár­festar virðast hafa á­hyggjur af stöðu banka­kerfisins.

Hluta­bréf í svæðis­bundnum bönkum eins og U.S. Bancorp og Key and Co­merica voru meðal þeirra bréfa í S&P 500 vísi­tölunni sem lækkuðu mest. Bank of America, JP­Morgan Chase og Citigroup lækkuðu einnig í fram­virkum samningum.

S&P 500, Dow Jones og Nas­daq vísi­tölurnar hafa allar lækkað um tæpt prósent fyrir opnun markaða.

Ítalskir bankar hríð­féllu á markaði í morgun eftir að ríkis­stjórn Ítalíu á­kvað að leggja 40% hval­reka­skatt á allan vaxta­mun hjá ítölsku bönkunum. UniCredit og aðrir ítalskir bankar hafa verið að toga Stoxx Europe 600 vísi­töluna niður í dag í kjöl­farið.