Íslenska hátæknifyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) hefur undanfarin tvö ár unnið að hönnun og byggingu stærstu efnaverksmiðju heims sem nýtir koltvísýringsútblástur sem hráefni til efnavinnslu. Verksmiðjan hefur nú verið gangsett en hún mun geta endurnýtt um 160.000 tonn koltvísýrings á ári úr útblæstri en árleg framleiðslugeta verksmiðjunnar er um 110.000 tonn af metanóli.
Verksmiðjan, sem staðsett er í Anyang í Henan héraði í Kína, byggir á framleiðslutækni og búnaði sem þróaður hefur verið af CRI og var fyrst sannreyndur í verksmiðju félagsins í Svartsengi. Verksmiðjan í Kína er 28-föld uppskölun á verksmiðjunni hér á landi.
Verksmiðjan er í eigu Shunli sem er í meirihlutaeigu kínverska iðnfyrirtækisins Henan Shuncheng Group.
Hjá CRI starfa um 30 manns en verkefnið er það stærsta sem félagið hefur tekist á við hingað til. Síðan í júní hefur teymi verið að störfum á vegum félagsins á verkstað í Kína.
Í tilkynningu segir að CRI hafi einnig lokið hönnun á annarri verksmiðju í Kína og er áætluð gangsetning í lok árs 2023. „Félagið hefur á síðustu misserum fundið fyrir aukinni eftirspurn víða um heim eftir umhverfisvænni tækni þess.“
Hver verksmiðja sem CRI kemur að er sögð skila verðmætum innflutningstekjum af meðal annars leyfisgjöldum af tækni, verkfræðivinnu, tækniþjónustu og sölu á sérhæfðum tækjabúnaði.
„Við erum mjög stolt af árangri félagsins í þessu mikilvæga verkefni, að koma umhverfisvænni íslenskri tækni á heimsmarkað. Tækni CRI er einstök á heimsvísu en með notkun hennar er hægt að draga úr losun koltvísýrings og á sama tíma framleiða vöru sem meðal annars getur spilað lykilhlutverk í orkuskiptum. Með tækni CRI er hægt er að framleiða rafeldsneyti hér á landi sem kemur í stað jarðefnaeldsneytis. Innlend framleiðsla rafeldsneytis styður einnig innlent hagkerfi og eykur orkuöryggi. Til gamans má nefna að framleiðsla þriggja verksmiðja af þessari stærð væri til dæmis nægileg fyrir full orkuskipti á skipaflota landsins“, segir Björk Kristjánsdóttir, forstjóri CRI.
![Verksmiðjan í Anyang í Henan héraði í Kína](http://vb.overcastcdn.com/images/119904.width-800.jpg)
Hönnuðu hvarfatankinn
Lykilbúnaður í framleiðsluferli verksmiðjunnar er hvarfatankur sem hannaður er og smíðaður eftir forskrift CRI. Hvarfatankurinn er fylltur með efnahvötum sem stuðla að umbreytingu koltvísýrings yfir í fljótandi metanól, sem nýta má bæði sem eldsneyti og hráefni í margvíslegar efnavörur.
Hvarfatankurinn vegur um 84 tonn eða sem nemur þyngd fullhlaðinnar Boeing 737-farþegaþotu. Hvarfatankinum er komið fyrir inni í stálgrind og tengdur með lögnum við annan búnað, meðal annars sérhæfða gasþjöppu og tæplega 70 metra háa eimingarsúlu.
Framleiðsluferlið felur í sér hreinsun og aðskilnaði á gasi frá koxofnum ásamt föngun á CO2-útblæstri sem annars færi út í andrúmsloftið. Gasið myndast sem aukaafurð við vinnslu á hráefnum svo sem koxi og kalksteini sem nýtt eru í stálframleiðslu. Metanólið er framleitt með svonefndri ETL-tækni, þróaðri af CRI, og mun það koma í stað metanóls sem framleitt er úr kolum í Kína.
Metanólið sem er framleitt hefur mun lægra kolefnisfótspor heldur en gengur og gerist almennt í metanólframleiðslu í Kína. Kína er stærsti framleiðandi og notandi á metanóli í heiminum og um 80% af framleiðslunni þar byggir á notkun kola.