Munnbitinn ehf., félag í meirihlutaeigu Sigmars, rak Minigarðinn og Bryggjuna brugghús frá byrjun árs 2022 eftir að Sigmar og Óli Valur Steindórsson skiptu Hlöllabátum ehf. upp í tvö félög. Í Hlöllabátasamstæðunni voru veitingastaðir Hlöllabáta, Barion Mosfellsbæ, Bryggjan brugghús ásamt Minigarðinum. Sigmar segir að fyrir uppstokkunina hafi félagið Hlöllabátar ehf. farið í gegnum faraldurinn án allra ríkisstyrkja vegna reglna hins opinbera.
Hann segir vonbrigði að yfirvöld hafi tekið mið af veltu félaga við veitingu viðspyrnustyrkja. „Allir sem vita eitthvað um rekstur vita að veltan skiptir ekki máli heldur afkoman og þær skuldbindingar sem þú tekur á þig.“ Hann segist þó stoltur af því að það hafi náðst að halda rekstrinum gangandi án þess að hafa þegið ríkisstyrk eða sagt upp starfsfólki.
Minigarðurinn mun taka ýmsum breytingum á næstu vikum. Settar verða upp 8-10 pílubrautir og pitsur bætt við nú þegar fjölbreyttan matseðil. „Með því að selja rekstur Bryggjunnar úr félaginu get ég sett allan fókus á Minigarðinn og þau verkefni sem þar liggja. Covid tók mikið á mig líkamlega og andlega og ég finn það að ég þarf hreinlega að minnka við mig og setja fókusinn á einn stað en ekki í tvo staði. Stundum verður maður að setja sjálfan sig og heilsuna í forgunn.“
Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.