Heildarfjöldi farþega Icelandair var um 366 þúsund í maí 2023, 16% fleiri en í maí í fyrra þegar farþegar voru 316 þúsund. Sætaframboð í maí jókst um 11% miðað við fyrra ár.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
„Farþegar í millilandaflugi voru 343 þúsund, 18% fleiri en í maí 2022, þegar 291 þúsund flugu með félaginu. Þar af voru 41% á leið til Íslands, 16% frá Íslandi og 42% voru tengifarþegar. Stundvísi í millilandaflugi var 75% sem er nokkuð undir væntingum og skýrist m.a. af óvenjuskörpum lægðum í maí. Sætanýting var 80,7% og jókst hún um 6,6 prósentustig á milli ára,“ segir í tilkynningunni.
Fjöldi farþega í innanlandsflugi fækkaði hins vegar á sama tímabili um 3 þúsund. Farþegafjöldinn var um 23 þúsund, samanborið við 26 þúsund í maí í fyrra.
Sætanýting var 76,6% í mánuðinum og stundvísi var 85%, töluvert betri en í sama mánuði í fyrra. Framboð var minna en í maí í fyrra og skýrist það meðal annars af því að aflýsa þurfti nokkrum fjölda flugferða vegna veðurs.
Fraktflutningar jukust um 34% á milli ára, aðallega vegna aukningar í fraktflugi yfir Atlantshafið með tilkomu tveggja Boeing 767 breiðþota í fraktflota félagsins. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 26% fleiri en í sama mánuði í fyrra.
„Sumarið lítur vel út og á sama tíma og við aukum umsvifin“
Fraktflutningar jukust um 34% á milli ára, aðallega vegna aukningar í fraktflugi yfir Atlantshafið með tilkomu tveggja Boeing 767 breiðþota í fraktflota félagsins. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 26% fleiri en í sama mánuði í fyrra.
„Við höldum áfram að sjá góðan árangur með mikilli fjölgun farþega á milli ára og sterkri tekjumyndun. Sumarið lítur vel út og á sama tíma og við aukum umsvifin með stærstu áætlun félagsins hingað til er sætanýting með besta móti. Svo hröð uppbygging starfseminnar er afrakstur þrotlausrar vinnu starfsfólks félagsins í kjölfar heimsfaraldursins. Í heild fljúgum við til 54 áfangastaða í ár og við höfum þegar hafið flug til Detroit og Prag sem eru nýir sumaráfangastaðir í flugáætlun okkar,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.