Hlutabréf Icelandair lækkuðu um 3,5% í Kauphöllinni í 138 milljón króna veltu í dag. Á sama tíma lækkuðu bréf Play á First North markaðinum um tæp 3%.
Í gærkvöldi tilkynnti Play að afkomuspá félagsins fyrir árið 2023, sem birt var í september og aftur í þriðja ársfjórðungsuppgjöri félagsins í október, eigi ekki lengur við vegna áhrifa jarðhræringa á bókunarstöðu félagsins.

Rúm vika er síðan Icelandair tilkynnti um að afkomuspá sín hefði verið tekin úr gildi vegna sömu ástæðna.
Jarðhræringar og umfjöllun um mögulegt eldgos á Reykjanesskaga hefur dregið úr eftirspurn eftir ferðum til Íslands, sem bókaðar eru með skömmum fyrirvara, að sögn flugfélagsins. Play segir þetta muni hafa áhrif á afkomu félagsins.
Kvika hækkaði í hálfs milljarðs veltu
Alvotech lækkaði einnig um 3% í um 400 milljón króna veltu en félagið birti árshlutauppgjör sitt eftir lokun markaða vestanhafs í gær.
Alvotech tapaði 275 milljónum dala, eða sem nemur hátt í 38 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum ársins. Dagslokagengi Alvotech var 1.317 krónur.
Kvika banki hækkaði mest allra skráðra félaga og fór gengi bankans upp um 3% í 456 milljón króna veltu.
Flug Amaoq á markaði hélt áfram og fór gengið upp um 1,4% í 70 milljón króna veltu. Gengi Amaroq hefur nú hækkað um 53% síðastliðið ár og var dagslokagengið 107 krónur og hefur aldrei verið hærra.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,78%. Heildarvelta á markaði var 2,5 milljarðar.