Hlutabréfaverð málmleitarfélagsins Amaroq minerals hefur hækkað um 3% í fyrstu viðskiptum dagsins en félagið tilkynnti í gærkvöldi að hlutafjáraukning félagsins hafi farið vel af stað.
Áskriftarverðið er 127 krónur sem samsvarar meðaltalsverði bréfa félagsins síðustu fimm daga hérlendis en verðið er lægra en meðaltalsverð gengi félagsins í Kanada.

Fjárfestar hafa lýst lýst yfir áhuga á þátttöku á áskriftarverðinu sem nemur um 5,2 milljörðum íslenskra króna.
Gengi Amaroq stendur í 128,25 krónum þegar þetta er skrifað og hefur hækkað um 61% síðastliðið ár. Gengi félagsins fór 135 krónur í byrjun janúar og hafði þá aldrei verið hærra.
Samkvæmt Amaroq verður fjármagnið úr hlutafjáraukningunni nýtt í „að hraða vinnslu, þróun og rannsóknum með það að markmiði að auka virði hlutabréfa félagsins og staðfesta mögulegt virði eignasafns þess.“