Hlutabréf í sænsku tónlistaveitunni Spotify ruku upp við opnun markaða í dag en félagið er skráð í Kauphöllina í New York.
Sænska fyrirtækið tilkynnti í morgun að til stæði að segja upp 1.500 starfsmönnum í hagræðingarskyni en það samsvarar um 17% af vinnuafli fyrirtækisins.

Daniel Ek, framkvæmdastjóri Spotify, segir að hann hafi sjálfur tekið þessa erfiðu ákvörðun í ljósi þess hve lítill hagvöxtur hafi verið undanfarið. Ek segir niðurskurðinn vera mjög sársaukafullan fyrir fyrirtækið en rúmlega 9.000 manns starfa hjá Spotify.
Gengi Spotify hækkaði um 10% í fyrstu viðskiptum en gengið hefur hækkað um tæp 20% síðastliðinn mánuð og 144% á árinu.
Samkvæmt uppgjöri Spotify hagnaðist fyrirtækið um 65 milljónir evra á þriðja ársfjórðung þessa árs og var það í fyrsta sinn sem fyrirtækið skilaði hagnaði í meira en ár.
Spotify hafði þá nýlega hækkað áskriftarverð sitt og fengið til sín fleiri viðskiptavini.