Nýsköpunarfyrirtækið Empower hefur sett hugbúnaðarlausnina Alda í loftið sem hefur það markmið að útrýma eitraðri vinnustaðamenningu. Hugbúnaðurinn var þróaður á Íslandi og býður upp á mælaborð, kannanir, markmiðasetningu, örfræðslu og aðgerðaráætlanir sérsniðnar með gervigreind.

Samstarfsaðilar verkefnisins eru Háskóli Íslands, Samtökin 78 og Þorskahjálp en á síðasta ári tryggði Empower sér 300 milljóna króna fjármögnun frá Frumtaki og Tennin. Í desember í fyrra tryggði fyrirtækið sér 50 milljóna króna styrk frá Tækniþróunarsjóði.

„Reynsla mín er sú að stjórnendur vilja sinna mannauðsmálum vel og telja iðulega að vinnuumhverfið stuðli að fjölbreytni og jákvæðri vinnumenningu. Með Öldu er hægt að styðjast við rauntímamælingar, sem sýna raunverulega stöðu og lagðar eru fram aðgerðir til betrumbóta. Slíkt reynist mun öflugra verkfæri en góður ásetningur í orði,” segir Þórey Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Empower.

Hugbúnaðarlausnin Alda gerir stjórnendum fyrirtækja kleift að halda utan um lykilmælikvarða varðandi fjölbreytni þar sem horft er til kyns, uppruna, fötlunar og kyngervis, inngildingu og upplifun starfsfólks á vinnustöðum.