Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu frá og með næstu áramótum. Gengið hefur verið frá samkomulagi þar að lútandi, að því er segir í tilkynningu móðurfélagsins Haga til Kauphallarinnar.

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu frá og með næstu áramótum. Gengið hefur verið frá samkomulagi þar að lútandi, að því er segir í tilkynningu móðurfélagsins Haga til Kauphallarinnar.

Guðmundur hóf störf hjá Bónus árið 1992 og tók við starfi framkvæmdastjóra árið 1998.

„Tíma mínum hjá Bónus er nú að ljúka og það verður erfitt að kveðja þetta frábæra fyrirtæki eftir rúmlega þrjá áratugi. Ég er stoltur af því að hafa staðið vörð um þau gildi sem mér var trúað fyrir þegar ég tók við félaginu, þ.e.a.s. lágmarks álagningu og sama vöruverði í öllum verslunum Bónus um land allt. Það traust sem viðskiptavinir hafa sýnt Bónus frá upphafi hefur svo verið mér hvatning og stærsta umbun síðastliðin þrjátíu ár,“ segir Guðmundur Marteinsson.

„Ég hef verið svo heppinn að fá að vinna með frábæru starfsfólki og yfirmönnum, sem ég þakka mjög gott samstarf í gegnum tíðina. Að sama skapi er ég þakklátur fyrir samstarf við okkar öflugu birgja og aðra samstarfsaðila sem eiga hlut í velgengni Bónus. Síðast en ekki síst vil ég þakka Ingu Brynju konunni minni fyrir að hafa gert mér kleift að sinna þessari krefjandi vinnu í þennan langa tíma.“

Þess má geta að vorið 2020 óskaði Guðmundur eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Bónus. Nokkrum vikum síðar komust Hagar og Guðmundur að samkomulagi um að hann myndi starfa áfram hjá félaginu.

Guðmundur sagði í kjölfarið að óánægja með þáverandi stefnu Haga hefði átt þátt í upp­sögn hans. Hann nefndi þá m.a. Bón­us þurfti að loka þremur verslunum vegna sáttar við Samkeppniseftirlitsins við kaup samstæðunnar á félögum í óskyldum rekstri.

„Það hefur verið bæði lærdómsríkt og ánægjulegt að fá að starfa með Guðmundi undanfarin ár, en velgengni Bónus hefur ekki síst byggt á staðfestu hans við að tryggja íslenskum heimilum ávallt hagkvæmustu matvörukörfu landsins, sem hefur verið markmið félagsins frá stofnun. Guðmundur skilur við Bónus sem leiðandi fyrirtæki í verslun á Íslandi, þar sem hagkvæmni í rekstri og hagur neytenda eru ávallt sett í fyrsta sætið,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.

Björgvin tekur við af Guðmundi

Björgvin Víkingsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og innkaupastjóri Bónus hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra og tekur við um næstu áramót.

Björgvin var ráðinn til Bónus í vor en hann gengdi áður stöðu forstjóra Ríkiskaupa.

„Það er fengur af því að fá Björgvin í þetta mikilvæga hlutverk, en hann er okkur að góðu kunnur eftir að hafa starfað hjá Bónus frá vormánuðum þessa árs og kynnst starfsemi félagsins vel,“ segir Finnur.

Ég er sannfærður um að víðtæk reynsla Björgvins af innkaupum, vörustjórnun og forystu í umsvifamikilli starfsemi mun án efa nýtast vel í að efla starfsemi Bónus enn frekar og tryggja landsmönnum áfram hagkvæmasta kostinn á matvörumarkaði hérlendis.“

„Á undanförnum mánuðum hef ég fengið að kynnast, og vinna með, gríðarlega skemmtilegu og öflugu fólki sem starfar hjá Bónus. Að fá svo tækifæri til þess að taka við keflinu af Guðmundi og halda áfram með það markmið Bónus að bjóða alltaf upp á ódýrustu matarkörfu landsins, tel ég vera mikil forréttindi. Ég þakka traustið sem mér er sýnt og fer fullur tilhlökkunar inn í þetta mikilvæga verkefni,“ segir Björgvin.

Björgvin Víkingsson, verðandi framkvæmdastjóri Bónus.