Heiðar Guð­jóns­son, hag­fræðingur og fyrr­verandi for­stjóri Sýnar, er kominn í stjórn Ís­lands­pósts ef marka má heima­síðu póstsins.

Heiðar kemur inn í stjórn Auðar Bjarkar Guð­munds­dóttur varaformanns stjórnar.

Um Heiðar segir á vef póstsins að hann hafi setið í stjórnum al­mennings­hluta­fé­laga víða „og barist fyrir inn­leiðingu góðra stjórnar­hátta síðustu tvo ára­tugi.”

Hall­dóra Lóa Þor­valds­dóttir fram­kvæmda­stjóri kennslu og þjónustu við Há­skólann á Bif­röst er á­fram for­maður stjórnar.

Gísli Sigur­jón Brynjólfs­son, Bald­vin Örn Óla­son og Guð­ný Hrund Karls­dóttir sitja einnig í stjórn Ís­lands­pósts.