Hlutabréfaverð Kviku banka hefur hækkað um tæp 7% í júlímánuði en gengi bankans fór upp um 3% í um 200 milljón króna viðskiptum í dag. Dagslokagengi Kviku var 15,20 krónur.
Hlutabréfaverð Skaga hækkaði annan daginn í röð og hefur gengi samstæðunnar nú farið upp um 6% síðustu tvo viðskiptdaga. Dagslokagengi Skaga var 15,6 krónur en gengið stóð í 14,65 krónum á miðvikudaginn.

Gengi Icelandair leiddi lækkanir í lítilli veltu en hlutabréfaverð flugfélagsins fór niður um tæp 1% og var dagslokagengið 0,92 krónur.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,57% og var heildarvelta á markaði 1,6 milljarðar.