Hlutabréfaverð Kviku banka hækkaði um 4% í um milljarðs veltu í Kauphöllinni í dag. Gengi Kviku hefur nú hækkað um 8% síðastliðna tíu daga en gengið hefur átt erfitt uppdráttar árinu og lækkað um 14% frá ársbyrjun.
Gengi líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech gaf hækkanir gærdaginn eftir er gengið fór niður um tæplega 4% í 242 milljón króna veltu. Dagslokagengi Alvotech var 1.875 krónur.

Hlutabréfaverð Haga, Skeljar, Eikar og Kaldalóns hækkaði um 3% í viðskiptum dagsins.
Gengi Icelandair tók örlítið við sér og fór upp um 2%. Dagslokagengi flugfélagsins var 1,05 krónur.
Úrvalsvísitalan OMXI 15 lækkaði um 0,16% og var heildarvelta í Kauphöllinni 3,3 milljarðar.