Stjórn Veritas hefur ráðið Þórönnu Jónsdóttur tímabundið í stöðu forstjóra félagsins, en Hrund Rudolfsdóttir, sem hefur leitt samstæðuna síðastliðin 10 ár, hefur samið um starfslok sín við stjórn, en mun þó vera stjórn og stjórnendum innan handar. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Þar segir að félagið standi á ákveðnum tímamótum. Framundan sé viðamikil uppbygging framtíðarvöruhúsa og almennra innviða, sem og tækniþróun sem því tengist. Það sé sameiginleg ákvörðun stjórnar og fráfarandi forstjóra að tíminn til að skipta um forystu sé réttur.

„Hrund tók við forstjórastarfinu af mér árið 2013 og hafði setið í stjórn Veritas í fjögur ár,“ segir Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður og aðaleigandi Veritas. „Félagið hefur vaxið og eflst svo um munar undir hennar stjórn og stendur fjárhagslega sterkt. Ég þakka Hrund farsælt samstarf undanfarin 14 ár og hennar þátt í þeim góða árangri sem náðst hefur. Það er eftirsjá að henni, en við óskum Hrund velfarnaðar í framtíðarverkefnum.

„Það er ánægjulegt að stjórnin geti reitt sig á Þórönnu til að stíga inn og brúa bilið fram að ráðningu framtíðar forstjóra. Hún hefur setið í stjórn Veritas síðastliðin fimm ár og var starfsmaður samstæðunnar á árum áður. Þóranna er því vel kunnug málum og var þessi leið talin farsælust til að fylgja Veritas inn í þá vegferð sem framundan er,“ segir Hreggviður.

Gera ráð fyrir 12% veltuaukningu

Í fréttatilkynningunni kemur fram að áætlað sé að velta Veritas-samstæðunnar árið 2023 verði um 33 milljarðar króna. Samstæðan velti 29,5 milljörðum króna á síðasta ári og gera áætlanir félagsins því ráð fyrir 12% veltuaukningu á þessu ári.

Um Veritas

Dótturfyrirtæki Veritas eru fimm, Artasan, Distica, MEDOR, Stoð og Vistor en þau byggja öll á traustum grunni með sérhæfingu í innflutningi, vörustjórnun og dreifingu lyfja (frumlyfja og samheitalyfja), hjúkrunarvara, rannsóknartækja og annarra vara fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi, sölu lausasölulyfja og annarra heilsuvara. Fyrirtækin eru jafnframt leiðandi í ráðgjöf, sölu og þjónustu á hágæða lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknarvöru auk sölu og þjónustu á stoðtækjum, hjálpartækjum, sjúkraskóm, innleggjum og þrýstingsvörum. Stöðugildi eru um 260.

Um Þórönnu

Þóranna hefur undanfarið starfað sem sjálfstæður stjórnendaráðgjafi m.a. fyrir Alvotech, Marel og ýmsar opinberar stofnanir. Hún hefur sinnt margvíslegum störfum við Háskólann í Reykjavík, var forseti viðskiptadeildar 2013-2016 og framkvæmdastjóri stjórnunar og rekstrar þar á undan. Hún var framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá systurfélögunum Veritas og Vistor árin 2005-2008, fyrsti framkvæmdastjóri Artasan og ein af stofnfélögum Auðar Capital. Þóranna hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu, er formaður stjórnar Landsbréfa, í stjórn Veritas frá 2018 og áður m.a. í stjórnum Festi, Krónunnar, Íslandsbanka og Lyfju. Þóranna er með doktorsgráðu í viðskiptafræði frá Cranfield University, MBA gráðu frá IESE í Barcelona og MSc gráðu í lyfjafræði.