Icelandair hefur tilkynnt að það muni hefja flug í fyrsta sinn til Innsbruck í Austurríki. Flogið verður til borgarinnar einu sinni í viku, á laugardögum, frá 27. janúar til 2. mars 2024.

Innsbruck er höfuðborg Tíról héraðs í Austurríki og er umkringd fjölda skíðasvæða í austurrísku og svissnesku Ölpunum.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að borgin mun bætast við fjölbreytt úrval skíðaáfangastaða Icelandair fyrir næsta vetur, en helstu áfangastaðir auk Innsbruck eru Munchen, Salzburg, Zurich, Verona, Osló og Vancouver.

„Það er frábært að fá Innsbruck inn í okkar öfluga leiðakerfi. Borgin er umkringd einum bestu skíðasvæðum heims og er því mjög eftirsóttur áfangastaður fyrir skíðafólk. Vegna staðsetningarinnar er Innsbruck flugvöllur sérlega umsetinn yfir vetrartímann og því erum við afar stolt af því að geta bætt borginni við fjölbreytt úrval skíðaáfangastaða næsta vetur,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu Icelandair.