Skakkiturn ehf., umboðsaðili Apple  á Íslandi, seldi vörur fyrir 5,7 milljarða á síðasta ári. Tekjur félagsins jukust um 40% frá árinu 2017 og eru meira en tvöfalt meiri en þær voru árið 2016. Ljóst má vera að Íslendingar eru afar sólgnir í vörur frá Apple enda má áætla að kaup Íslendinga erlendis á vörum frá Apple séu einnig þó nokkur. Skakkiturn hagnaðist um 339 milljónir króna á síðasta ári sem er 38% hækkun hagnaðar milli ára en hann nam 244 milljónum króna árið 2017 og 121 milljónum króna árið 2016. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) hækkar úr 305 milljónum króna í 434 milljónir króna milli áranna 2017 og 2018.

Umsvifin af iPhone aukast

„Árið gekk vel og það var góður gangur í sölu á öllum vörum Apple,“ segir Guðni Rafn Eiríksson, framkvæmdastjóri og eigandi Skakkaturns. Hann bendir á að árið 2017 hafi Skakkiturn orðið umboðsaðili fyrir iPhone á Íslandi, sem eigi þátt í að skýra aukna veltu félagsi. Fram að því höfðu fjarskiptafélögin Nova, Síminn og Vodafone deilt umboðinu á milli sín. Skakkiturn er því nú með umboð fyrir allar vörur Apple hér á landi. „iPhone síminn er umfangsmikill en það er minna upp úr honum að hafa á tæki,“ segir Guðni. Árið 2018 var því fyrsta heila árið sem  Skakkiturn  var með umboðið fyrir iPhone síma hér á landi. Skakkiturn  rekur tvær verslanir undir nafninu Epli, á Laugavegi og í Smáralind auk þess að vera heildsali Apple vara hér á landi. Guðni segir snjallúrin  Apple  Watch  og þráðlausu  heyrnartólin AirPods  njóta aukinna vinsælda. Hann segir von á nýrri og endurbættri útgáfu af AirPods sem Apple kynnti nýlega auk þess sé Apple Watch mest selda úr í heimi um þessar mundir.

Leggja til 300 milljóna arðgreiðslu

Félagið keypti eigin bréf af eiganda sínum fyrir 185 milljónir króna í fyrra. Stjórn félagsins leggur til að 300 milljóna króna arður verði greiddur í ár af starfsemi síðasta árs. Guðni keypti rekstur Skakkaturns seint undir lok árs árið 2016 af Valdimari Grímssyni, fyrrverandi landsliðsmanni í handbolta, og Bjarna Ákasyni, sem var framkvæmdastjóri Skakkaturns. Samkvæmt ársreikningum hlutafélagsins sem á Skakkaturn, og heitir A 80 ehf., var miðað við að virði félagsins væri um 900 milljónir króna. Síðan þá hefur félagið hagnast um 582 milljónir króna eða sem samsvarar um ríflega 60% kaupverðsins. Bókfært virði Skakkaturns er tæpir 1,2 milljarðar króna samkvæmt ársreikningi A 80 ehf.

© vb.is (vb.is)

Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta gerst áskrifendur hér .