Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 13,6% árið 2023 borið saman við fyrra ár samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum Hagstofu Íslands.

Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 5,8 milljónum króna á árinu og jukust um 10,8% frá fyrra ári. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 1,9% á árinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 8,8%.

Heildartekjur heimilanna jukust um 12,8% árið 2023 samanborið við fyrra ár en þar af jukust launatekjur um 12% og eignatekjur um 27,1%.

Gjöld heimilanna jukust um 11,7% á árinu 2023 samanborið við fyrra ár en þar af jukust skattar á laun um 11% og vaxtagjöld um 27,3%.

Kaupmáttur dróst saman á öðrum fjórðungi

Samkvæmt nýju bráðabirgðamati jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 1,2% á fyrsta ársfjórðungi 2024 en dróst saman um 1,8% á öðrum ársfjórðungi.