Eignarhaldsfélagið KKR hefur gengið frá stærstu fasteignakaupum í sögu félagsins en fyrirtækið keypti nýverið 5.200 íbúðir víðs vegar um Bandaríkin.
Samkvæmt The Wall Street Journal er heildarkaupverðið um 2,1 milljarður Bandaríkjadala sem samsvarar um 293 milljörðum króna á gengi dagsins.
Um er að ræða íbúðarblokkir í ríkjum eins og Texas, Kaliforníu og New Jersey svo dæmi séu tekin en kaupin eru sögð sýna bjartsýni fjárfesta á að fjölskylduhúsnæði innan borgarmarka muni taka við sér.

Samkvæmt WSJ er KKR einnig að veðja á að leiguverð muni hækka á komandi árum en leiguverð í Bandaríkjunum hefur staðið í stað síðastliðið ár samhliða stórauknum framkvæmdum. Auknar framkvæmdir samhliða háum vöxtum hafa þrýst íbúðaverði víðs vegar um Bandaríkin niður á við.
Quaterrea, fasteignaarmur byggingarfyrirtækisins Lennar, seldi KKR stóran hluta eignasafns síns í viðskiptunum. Samkvæmt ársuppgjöri Lennar hefur fyrirtækið verið að tapa peningum á íbúðarútleigum nokkra ársfjórðunga í röð.
Verð á íbúðum hefur lækkað um 20% frá því það náði hámarki í júlí 2022 samkvæmt gögnum MSCI. Þá hefur dregið töluvert úr íbúðakaupum á síðustu árum en KKR virðist veðja á að leiguverð muni hækka og íbúðir hækka að verði.