Reitir hafa gengið til samninga við Klíníkina Ármúla um uppbyggingu á læknamiðstöð í Ármúla 7 og 9. Klíníkin mun áfram leigja hluta Ármúla 9 en stækka starfsemi sína yfir í aðliggjandi byggingar í Ármúla 7, tengibyggingu milli húsanna auk bakhúss. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Eftir stækkunina verður húsnæði Klíníkurinnar um sjö þúsund fermetrar að stærð og verður lengd leigusamnings tuttugu ár frá afhendingu. Stækkunin leiðir til fjárfestingar af hálfu Reita upp á um 2,8 milljarða króna vegna breytinga á umræddum fasteignum sem dreifist yfir næstu 22 mánuði og verða fjármagnaðar úr sjóðum félagsins.
Ármúli 7 hefur að mestu verið í skammtímaleigu til ýmissa aðila en tekjuaukning Reita á ársgrunni vegna samningsins við Klíníkina er áætluð um 270 milljónir króna og aukning rekstrarhagnaðar um 220 milljónir króna, að því er kemur fram í tilkynningu. Áhrifin munu þó ekki fara að koma fram svo nokkru nemi fyrr en eftir afhendingu Ármúla 7 til Klíníkurinnar á seinni hluta ársins 2024.