Konráð S. Guðjónsson hefur tímabundið verið ráðinn sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins vegna yfirvofandi kjarasamningsgerðar en þá mun hann jafnframt taka sæti í samninganefnd SA. Hann hefur störf 1. september næstkomandi en frá áramótum hefur hann starfað sem aðalhagfræðingur Stefnis. Hann mun snúa aftur til Stefnis að störfum sínum hjá SA loknum. Frá þessu er greint á vef SA.
Konráð starfaði áður sem hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands en þar áður starfaði hann í greiningardeild Arion banka, hjá Hagfræðistofnun og við þróunarsamvinnu í úganda og Tansaníu. Samhliða störfum sínum hefur hann sinnt kennsluvið Háskóla Íslands og endurmenntun Háskóla Íslands. Þá er hann með meistaragráðu í hagfræði frá Warwick háskóla í Bretlandi og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA:
„Það er mikill styrkur að fá Konráð tímabundið til liðs við SA enda er umfangsmikið verkefni framundan. Við væntum mikils af honum og þekkjum vel til hans starfa í gegnum tíðina.“