RARIK hefur ráðið til sín Kristínu Soffíu Jónsdóttur sem framkvæmdastjóra þróunar og framtíðar hjá félaginu. Um nýja stöðu er að ræða samkvæmt nýju skipulagi RARIK sem tók gildi 1. október síðastliðinn.

„Í forgrunni verkefna Kristínar Soffíu verða þriðju orkuskiptin en það er hlutverk RARIK að gera þau möguleg á landsbyggðinni,“ segir í fréttatilkynningu RARIK.

Kristín Soffía kemur frá Leitar Capital Partners en hún situr jafnframt í stjórn Orkusölunnar ehf., dótturfyrirtækis RARIK. Þar áður var hún framkvæmdastjóri hjá KLAK – Icelandic Startups.

Hún hefur ennfremur starfað sem borgarfulltrúi um nokkurra ára skeið. Þá stofnaði Kristín félagið Sea Fuel ehf. sem undirbjó framleiðslu á ammoníaki.

Á hinu nýja sviði RARIK, þróun og framtíð, verður einblínt á tækifæri sem felast í breytingum sem eru að raungerast á sviði orkumála og í verkefnum dreifiveitna að því er segir í tilkynningunni. Starf framkvæmdastjóra sviðsins felst m.a. í rýni og greiningu á framtíðarhögun dreifiveitu með nýjum orkukostum og smávirkjunum „þar sem viðskiptavinir verða í ríkari mæli bæði viðtakendur og framleiðendur raforku“.

„Við erum kampakát að fá Kristínu til liðs við okkur í nýju skipulagi RARIK. Reynsla hennar er mjög hentug þeim verkefnum sem hún mun takast á hendur og ekki síður er drifkraftur hennar mikilvægur þegar við stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum í tengslum við þriðju orkuskiptin á landsbyggðinni. Bakgrunnur Kristínar er umhverfisverkfræði sem er okkur mikilvæg fagþekking og tengir vel við verkefni um loftslagsvá og orkuskipti. Við hlökkum til að fá hana til starfa í framkvæmdastjórn RARIK,“ segir Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri RARIK.

„Hjartað mitt slær alltaf í umhverfismálum og ég er mjög spennt að vera komin í orkumálin og tel að það felist gríðarleg tækifæri í orkuskiptum á landsbyggðinni. Nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi hafa átt hug minn allan seinustu ár og núna fæ ég tækifæri til að sameina ástríðu mína fyrir umhverfismálum og nýsköpun og er þetta því sannkallað draumastarf. Ég mun leggja hart að mér til að leiða þessi verkefni til lykta með góðum stuðningi reyndra og faglegra starfsfélaga hjá RARIK,“ segir Kristín Soffía.

Tryggvi stígur til hliðar

Tryggvi Ásgrímsson sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Þróunar og framtíðar hefur ákveðið að stíga til hliðar sem framkvæmdastjóri. Tryggvi á að baki tæplega 36 ára starfsferil hjá RARIK, nú síðast sem framkvæmdastjóri Tæknisviðs og svo framkvæmdastjóri Þróunar og framtíðar. Tryggvi mun áfram starfa á sviðinu sem sérfræðingur og vera Kristínu innan handar í nýju hlutverki.

RARIK hefur á undanförnum vikum ráðið fjölbreyttan hóp nýs starfsfólks í tíu hlutverk, til samræmis við nýtt skipurit félagsins. Sjö þeirra mun starfa á starfstöðvum RARIK á landsbyggðinni og þrjú á starfsstöð fyrirtækisins í Reykjavík.

„Í ráðningunum var lögð áhersla á að veita tækifæri á landsbyggðinni en yfir 70% alls starfsfólks RARIK starfar á starfsstöðvum fyrirtækisins utan höfuðborgarsvæðisins.“