Að mati greiningardeildar Landsbankans styrkist krónan lítillega á árinu samhliða hækkandi raungengi þar sem verðbólga verður meiri hér en í helstu viðskiptalöndum Íslands.
Að mati greiningardeildar Landsbankans styrkist krónan lítillega á árinu samhliða hækkandi raungengi þar sem verðbólga verður meiri hér en í helstu viðskiptalöndum Íslands.
„Krónan veiktist nokkuð í nóvember í fyrra þegar jarðhræringarnar á Reykjanesskaga stóðu sem hæst. Veikingin gekk að hluta til baka og undanfarið hefur gengi krónunnar verið á nokkuð þröngu bili, sérstaklega gagnvart evru sem hefur kostað um það bil 150 krónur,“ segir í Hagsjá Landsbankans sem kom út í morgun.
Greiningardeildin segist ekki hafa einhlíta skýringu á því af hverju krónan hefur reynst svona stöðug en veltir þó ýmsu upp.
Til dæmis hefur velta á millibankamarkaði með gjaldeyri hefur verið í minna lagi sem bendir til þess að viðskiptabankarnir hafi náð að para saman kaupendur og seljendur á gjaldeyri meðal viðskiptavina sinna að miklu leyti, sem aftur bendir til þess að það sé nokkuð gott jafnvægi í gjaldeyrisflæði inn og út úr landinu.
„Seðlabankinn hefur þar af leiðandi að mestu haldið sig á hliðarlínunni síðan í nóvember, fyrir utan ein viðskipti í febrúar þegar hann greip inn og seldi krónur til að mæta innflæði erlendra aðila vegna þeirra á íslenskum ríkisskuldabréfum í útboði Lánamála,“ segir í Hagsjánni.
Í hagspá Landsbankans til ársins 2026 gerði greiningardeild bankans ráð fyrir hægfara styrkingu krónunnar næstu ár og að evran myndi standa í 148 í lok árs 2024, 146 í lok árs 2025 og 145 í lok árs 2026.
„Alltaf má þó búast við þó nokkrum gengissveiflum innan árs og jafnvel innan mánaða. Helstu ástæður fyrir því að við spáum styrkingu eru horfur um afgang af viðskiptum við útlönd. Staðan í framvirkum samningum bendir einnig til þess að markaðsaðilar séu almennt bjartsýnir á gengið ásamt því sem vaxtamunur við útlönd ætti að styðja við gengið,“ segir í Hagsjánni.
Ísland verður dýrara
Raungengi er það sem skýrir hversu dýrt eða ódýrt Ísland er, enda búið að leiðrétta fyrir breytingum á verðlagi. Raungengi hefur hækkað ár frá ári frá því það fór lægst í covid-faraldrinum árið 2020.
Greiningardeild bankans telur að raungengi hækki áfram næstu árin og að árið 2026 verði það á svipuðum stað og árið 2017 þegar það var hvað hæst á síðasta uppgangstíma ferðaþjónustunnar.
„Hærra raungengi þýðir hátt verð á vörum og þjónustu hér á landi í samanburði við önnur lönd. Það gæti haft þær afleiðingar að færri, en efnameiri, ferðamenn komi hingað til lands en ella. Hafa ber þó í huga að við spáum ekki samdrætti í ferðaþjónustu, heldur aðeins að umsvif hennar aukist minna næstu ár en þau hafa gert á síðustu árum,“ segir í spá bankans.