Íslenska krónan hefur styrkt sig um 1,8% gagnvart Bandaríkjadal síðastliðna sjö daga og er dalurinn kominn undir 140 krónur á ný.
Bandaríkjadalur stendur í 137,9 krónum í dag en var 140,4 síðasta fimmtudag.
Á sama tíma hefur krónan styrkt sig gagnvart evru um 1,62% síðastliðna viku og hefur evran lækkað úr 153 krónum í 150,5 krónur.

Þá hefur íslenska krónan styrkt sig um 1,59% gagnvart dönsku krónunni og 1,33% gagnvart norsku krónunni.
Krónan styrkti sig töluvert um miðjan mánuð þegar Seðlabankinn greip inn á gjaldeyrismarkaði en fram að þeim tíma hafði gengi krónunnar veikst mikið, sér í lagi vegna óvissu í kringum jarðhræringa á Reykjanesskaga.