Þórhildur Ólöf Helgadóttir forstjóri póstsins sagði á Viðskiptaþingi í dag að lágmarkslaun hjá Póstinum hafi hækkað um 73,9% frá árinu 2017 ef stytting vinnuvikunnar er tekin með í reikningin.
Pósturinn hefur unnið að því að snúa rekstrinum við síðastliðinn ár en þróun verðlags og þróun launa hefur gert það erfitt fyrir að sögn Þórhildar.
„Við skulduðum alltof mikið. Við skulduðum þrjá milljarða og áttum ekki fyrir launum,“ segir Þórhildur um stöðu Póstinn þegar hún tók við sem fjármálastjóri árið 2019 en núna er staðan allt önnur.
„Þetta var mjólkurkú Póstsins“
Hún bendir á að pósturinn sé með póstbox um allt land en mannaðar afgreiðslustöðvar verða sífellt færri og færri. „Við erum með 40 í dag en ætlum ekki að vera með 40 á næsta ári,“ segir Þórhildur.
„Umhverfið er að þyngjast. Allur kostnaður er að hækka og við finnum öll fyrir því,“ sagði Þórhildur og bætti við að samkeppnin væri að aukast samhliða því að magn bréfa væri að dragast saman.
„Við erum með 85% minna magn af bréfum frá 2010. Þetta var mjólkurkú Póstsins,“ sagði Þórhildur og bendir á að samhliða því hafa pakkar og erlendar sendingar aukist.
Starfsmönnum fækkað um 350 á fimm árum
Fjárfestingar hafa verið að koma rekstri Póstsins aftur á réttan kjöl að sögn Þórhildar. Það hefur leitt af sér að Pósturinn afgreiðir fimm sinnum fleiri pakka á klukkustund en áður. Þá hafi nýting gagna hjálpað mikið til en sem dæmi er Pósturinn byrjaður að tollaafgreiða vörur áður en þær koma til landsins.
Hagræðing í rekstrinum hefur haft í för með sér að starfsmönnum Póstsins hefur fækkað um 350 manns frá 2019. Stöðugildum fækkaði um 41 á milli áranna 2022 til 2023.
Frá 2019 hefur Pósturinn greitt niður 2,3 milljarða króna skuld. „Sem betur fer skuldum við þetta ekki lengur,“ sagði Þórhildur.
Svanhildur: „Nei, ríkið á ekki að eiga póstinn“
„Við hugsum á hverjum degi; hvernig getum við hagrætt og hvernig getum þjónustað viðskiptavininn betur,“ sagði Þórhildur og bætti við að lokum í léttum tón að það væri ekki hennar að svara hvort ríkið ætti að eiga póstinn.
Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, svaraði fyrir hönd Þórhildar að loknu erindinu. „Nei, ríkið á ekki að eiga póstinn.“