Fyrir einungis átta mánuðum síðan varð Nvidia fyrsti örflöguframleiðandinn til að ná markaðsvirði yfir 1.000 milljarða Bandaríkjadali. Síðan þá hefur virði félagsins næstum tvöfaldast en við lokun markaða í gær nam markaðsvirði félagsins um 1.800 milljörðum dala.
Gerir það Nvidia þriðja verðmætasta fyrirtækið á markaði í Bandaríkjunum á eftir Microsoft og Apple.

Gengi Nvidia hefur hækkað um 51% það sem af er ári og 251% síðastliðið ár.
Nvidia mun birta ársuppgjör á miðvikudaginn en samkvæmt The Wall Street Journal er áætlað að tekjur félagsins muni vera um 59 milljarðar dala á fjárhagsárinu sem endar í janúar. Samsvarar það um 8.137 milljörðum króna króna á gengi dagsins.
Verði það raunin er það mun meiri tekjuaukning milli ára en stóru tæknifyrirtækin Apple, Microsoft, Amazon, Meta og Alphabet hafa nokkrum sinnum skilað.
Greiningaraðilar spá því einnig að tekjur fyrirtækisins muni þrefaldast á fyrsta fjórðungi þessa árs miðað við árið 2023 og verði um 21,6 milljarðar dala en félagið birti árshlutauppgjör í apríl.
Því er einnig spáð að tekjur félagsins á árinu 2024 muni aukast um 56% og verði um 92 milljarðar dala eða um 12.700 milljarðar króna á gengi dagsins fyrir fjárhagsárið sem endar í janúar 2025.