Ef markmiðið er að bjóða sambærileg húsnæðislánakjör og í löndunum í kringum okkur, þarf rekstrarumhverfið að vera samkeppnishæft hvað varðar kostnað, áhættu og skilvirkni lánamarkaðarins. Í skýrslu Jóns Helga Egilssonar, doktors í hagfræði, Húsnæðislán – Hvað má betur fara? sem unnin var fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið eru helstu frávik íslenska húsnæðislánamarkaðarins greind og lagðar fram sex tillögur sem miða að því að bæta samkeppnisstöðuna og fjölga valkostum neytenda.

Í stuttu máli snúast tillögurnar um að stjórnvöld endurskoði lög með það að markmiði að auka hvata banka til að bjóða lán með föstum vöxtum til lengri tíma, stuðli markvisst að þróun vaxtaskiptamarkaðarins og styrki hann með afnámi hámarks uppgreiðslugjalds, auk þess að styrkja makað fyrir sértryggð skuldabréf til að draga úr vægi verðtryggðra fasteignalána. Þá er lagt til að skoðað verði hvernig efla megi vaxtaskiptamarkaðinn með þátttöku opinberra og einkaaðila, stjórnvöld styðji við þróun sértryggðs skuldabréfamarkaðar og skoðað verði hvernig gjaldmiðlaskiptasamningar gætu nýst á íslenskum fasteignalánamarkaði.

Hugarfóstur Sigurðar Inga

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og þáverandi fjármálaráðherra, fól Jóni Helga að vinna skýrsluna í október á síðasta ári. Verkefninu var skipt í fjóra verkþætti til að ná settum markmiðum um að greina hvernig fjármálastofnanir geti boðið íslenskum fasteignakaupendum hagstæðari kjör á löngum óverðtryggðum lánum, sambærileg þeim sem standi til boða í nágrannalöndum. Fyrsti hlutinn, sem er fyrrgreind skýrsla, er skilgreind sem forathugun en samkvæmt skipulagi verkefnisins tæki svo undirbúningur og samráð við sem næsta skref. Að því loknu yrði ráðist í ítarlega útfærslu og loks framkvæmd og rekstur.

Fljótlega eftir að Sigurður Ingi setti verkefnið í gang sprakk ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna og boðað var til kosninga. Að þeim loknum var ný ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins mynduð og Daði Már Kristófersson tók við sem fjármálaráðherra. Samkvæmt svörum fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Viðskiptablaðsins mun ráðuneytið eiga fund með höfundi á næstunni þar sem farið verður yfir efni skýrslunnar. Ráðuneytið muni svo meta niðurstöðu þess samtals og taka ákvörðun um framhald málsins.

Þingflokkur Framsóknarflokksins, með Sigurð Inga sem fyrsta flutningsmann, hefur lagt fram þingsályktunartillögu sem miðar að því að tryggja Íslendingum óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma. Þetta var eitt helsta kosningamál Framsóknarflokksins í Alþingiskosningunum fyrr í vetur.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.