Landsvirkjun hefur tilkynnt öllum stórnotendum raforku á suðvesturhluta landsins að skerðingum á afhendingu raforku verði aflétt frá og með morgundeginum 7. febrúar.
„Ástæðan er batnandi vatnsbúskapur á Þjórsársvæðinu eftir umhleypingar síðustu vikna. Þá gerir langtímaspá ráð fyrir að hiti og úrkoma verði yfir meðallagi næstu vikur og því hverfandi líkur á að grípa þurfi til frekari skerðinga fram til vors,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar.
Landsvirkjun miðar upphaf hvers vatnsárs við 1. október. Félagið segir stöðu lóna hafa verið með versta móti sl. haust, t.d. var staða Þórisvatns í sögulegu lágmarki, því þótt vætusamt hafi verið á láglendi sl. sumar var þurrt og kalt á hálendinu og innrennsli í lón dræmt.
Strax í september hafi verið ljóst að grípa þyrfti til skerðinga og hófust þær hjá stórnotendum á suðvesturhluta landsins 24. október sl. Á sama tíma stefndi í skerðingar á norður- og austurhluta landsins undir lok nóvember, en til þeirra skerðinga kom þó aldrei.
„Hálslón við Kárahnjúka náði sér á strik í nóvember og hið sama má segja um Blöndulón. Sú bætta staða hafði hins vegar ekki áhrif á skerðingar syðra þar sem flutningskerfi raforku gerir Landsvirkjun ekki kleift að færa nægilega raforku milli landshluta.“
Landsvirkjun áréttar að skerðingar ná aðeins til þeirrar orku sem Landsvirkjun og viðskiptavinir hennar hafa samið um að sé skerðanleg þegar staða miðlunarlóna er lág. Landsvirkjun hafi staðið við alla samninga um afhendingu forgangsorku til stórnotenda og heildsölu.