Ómar Svavarsson hefur komist að samkomulagi við stjórn Securitas um starfslok eftir að hafa gegnt starfi forstjóra frá júlí 2017.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Securitas en þar segir að hann láti strax af daglegum störfum en verður félaginu innan handar þar til eftirmaður hans hefur verið ráðinn.
„Ég vil þakka Ómari fyrir gott samstarf síðustu 7 árin og óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Félagið hefur vaxið og dafnað í hans forstjóratíð og hefur þess á meðal flutt í nýjar höfuðstöðvar og farsællega tekist á við ýmsar áskoranir,“ segir Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir stjórnarformaður Securitas í tilkynningu.
Jóhann Gunnar Jóhannsson fjármálastjóri Securitas tekur við hlutverki forstjóra þar til framtíðar forstjóri hefur verið ráðinn.