Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur fjárfest í hugbúnaðarfyrirtækinu Advise ehf. og er eftir viðskiptin eigandi 40% hlutafjár í félaginu. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Advise hefur náð eftirtektarverðum árangri hér á landi á stuttum tíma og teymi þeirra hefur þróað hugbúnað sem hjálpar litlum og meðalstórum fyrirtækjum að nýta gögnin sín og bæta reksturinn”, segir Jón Björnsson, forstjóri Origo. „Hugbúnaðurinn sparar tíma og pening og einfaldar svo sannarlega lífið.”

Advise er eigandi og rekstraraðili Advise Business Monitor sem er hugbúnaðarlausn á sviði viðskiptagreindar. Lausnin veitir litlum og meðalstórum fyrirtækjum rauntímaupplýsingar um reksturinn.

Lausnin inniheldur m.a. forsniðnar tengingar við bókhaldskerfi, gagnahýsingu, greiningar fjárhagsgagna, áætlanagerð, frávikagreiningar og öflug mælaborð.

„Ég er virkilega ánægður og spenntur að fá Origo inn í hluthafahóp Advise. Undanfarin misseri höfum við unnið að því að undirbúa lausnina fyrir erlenda markaði. Fjárfesting Origo gerir félaginu kleift að hraða þróun og markaðslegum undirbúningi fyrir þessa vegferð samhliða því að sækja fram innanlands,” segir Mikael Arnarson, framkvæmdastjóri Advise.

„Reynsla Origo af uppbyggingu lausna fyrir alþjóðlegan markað, viðskiptasambönd hérlendis og erlendis sem og mikil þekking á hugbúnaðarþróun, mun styðja við vegferð og árangur Advise.”