Bandaríska fyrirtækið Rescale, sem sérhæfir sig í ofurtölvuvinnslu í skýjunum, hefur hafið samstarf við nýtt íslenskt fyrirtæki, Responsible Compute, um að bjóða upp á sjálfbærar HPC-skýjalausnir í krafti íslenskrar endurnýjanlegrar orku. Responsible Compute er samstarfsverkefni Origo og Borealis Data Center.
Í tilkynningu segir að skýjalausnin sé sniðin að þörfum viðskiptavina og geti keyrt smá sem risastór reikniverk á nýjum HPC-innviðum. Þjónusta Responsible Compute muni gagnast viðskiptavinum Rescale um allan heim sem vilja nýta sér sjálfbærar lausnir.
Gagnaver og hýsingar eiga um 2% af allri losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum ár hver, sem er svipað og allur fluggeirinn skilar af sér árlega. Áætlað er að þessi losun muni fara upp í 3% árið 2025. Stór og leiðandi alþjóðleg fyrirtæki keppast nú um að nýta sér sjálfbærar leiðir til reksturs til að minnka áhrif sín á umhverfið.
„Við spáum áframhaldandi vexti í eftirspurn á sjálfbærum hýsingarlausnum. Rescale ætlar að mæta þeirri eftirspurn með tólum sem gera viðskiptavinum okkar kleift að ná tökum á kostnaði og afköstum á skýjalausnum þeirra, en á sama tíma tryggja þætti sem hafa áhrif á sjálfbærni og umhverfisvernd.” segir Joris Poort forstjóri og stofnandi Rescale.
Rescale er bandarískt félag sem sérhæfir sig í þjónustu við fyrirtæki sem nýta sér mikla reiknigetu í gegnum HPC-skýjalausnir á alþjóðlegum mörkuðum. Sem dæmi má nefna að bifreiðaframleiðendur reiða sig í sífellt meiri mæli á HPC-þjónustu við t.d. hönnun á bílum, árekstrarprófanir, verkfræðihönnun og margt fleira.
Gagnaver rafmögnuð með íslenskri vatnsorku
Responsible Compute, samstarfsverkefni Origo og Borealis Data Center, mun bjóða upp á HPC-innviðaþjónustu í gagnaverum Borealis sem eru keyrð á umhverfisvænum orkugjöfum og kæld með umhverfisvænum leiðum.
Gagnaver Borealis Data Center hýsa í dag ýmsa þjónustu frá alþjóðlegum viðskiptavinum upp á um 60MW á tveimur stöðum á Íslandi. Gagnaverið á Blönduósi fær sína raforku að mestu leyti frá Blönduvirkjun sem framleiðir 150MW af endurnýjanlegri raforku með vatnsfalli.
„Stefna Responsible Compute er að bjóða upp á sjálfbæra HPC-innviðaþjónustu með bestu mögulegu kolefnisskýrslum sem völ er á, sem eru byggðar á þekktum og stöðluðum reikniaðferðum. Þetta gerir viðskiptavinum okkar kleift að draga úr umhverfisspori sínu, meta þróun útblásturs og vega möguleg úrræði í átt að kolefnishlutleysi.” segir Kristján Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Responsible Compute.