Heilbrigðistæknifyrirtækið Össur hefur gengið frá kaupum á Naked Prosthetics sem sérhæfir sig í stoðtækjum fyrir einstaklinga sem misst hafa framan af fingri eða hlut af hendi. Greint er frá kaupunum í fréttatilkynningu.

„Fjöldi fólks í heiminum fer á mis við aukin lífsgæði sem felast í stoðtækjum sem þessum. Stoðtækin eru sérhönnuð til að líkja eftir hreyfingum einstakra fingra og gera fólki kleift að stunda ýmiskonar vinnu og tómstundir og eru góð viðbót við fjölbreytt vöruframboð Össurar,“ segir í fréttatilkynningu.

Fyrirtækið er staðsett nálægt Seattle í Washington fylki og bætist við þær starfsstöðvar sem Össur starfrækir víða um heim. Össur er með starfsstöðvar í 35 löndum og starfsfólk er um 4.000. Sala Naked Prosthetics nam 9 milljónum bandaríkjadala árið 2021 eða 1,1 milljarði íslenskra króna.

„Kaupin á Naked Prosthetics er ánægjuleg viðbót við vöruframboð Össurar og gerir okkur kleift að aðstoða fjölda einstaklinga víða um heim sem eru með skerta hreyfigetu í höndum sökum aflimunar og styrkir markaðsstöðu okkar á alþjóðavettvangi,“ segir Sveinn Sölvason, forstjóri Össurar, í fréttatilkynningu.