Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Valencia næsta sumar. Fyrsta flugið verður 24. maí 2025 og verður flogið á þriðjudögum og laugardögum fram til 29. september.

Valencia verður níundi áfangastaður Play á Spáni en fyrir flýgur félagið til Alicante, Barcelona, Fuerteventura, Gran Canaria, Madríd, Malaga, Mallorca og Tenerife.

Valencia er einnig fjórði nýi áfangastaðurinn sem Play kynnir til sögunnar á jafnmörgum vikum. Miðasala er þegar hafin fyrir áætlunarferðir til Álaborgar í Danmörku, Faro í Portúgal og Pula í Króatíu á næsta ári en þar að auki hefur Play ákveðið að fjölga ferðum til Split í Króatíu.

„Þá er níundi áfangastaðurinn okkar á Spáni kominn í sölu og við sjáum fyrir miklum áhuga á Valencia á næsta ári. Við viljum bjóða Íslendingum upp á öfluga áætlun til sólarlandaáfangastaða og Valencia mun án efa heilla þá sem sækja borgina heim,” segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.