Rautt er yfir að litast í Kauphöllinni eftir fyrstu viðskipti dagsins en þegar þetta er skrifað hefur gengi 17 félaga, af 22 sem skráð eru á aðalmarkað, lækkað.

Gengi bréfa Icelandair hefur lækkað mest, um 5,1%. Þá hefur gengi Marel lækkað um 3,75%. Gengi bankanna þriggja á markaði hefur lækkað nokkuð. Gengi bréfa Kviku hefur lækkað um 3,3% og Arion um 1,4%. Gengi hlutabréfa í Íslandsbanka hefur lækkað um 2,3%.

Þá hefur til að mynda gengi Eimskips lækkað um 3,3%, Nova um 2,6%, Haga um 2,15%, og Símans um 1,9%.

Úrvalsvísitalan OMXI10 hefur lækkað um 2,45% frá opnun en heildarvelta viðskipta það sem af er dags hefur numið 650 milljónum króna.