Reykjavíkurborg auglýsir eftir samstarfsaðila til að reka Parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn en áhugasamir aðilar hafa til 22. mars að senda inn tillögur.

Parísarhjólið verður opið yfir sumartímann en í auglýsingu borgarinnar er gert ráð fyrir að mögulegur rekstraraðili muni standa allan straum af kostnaði við uppsetningu og rekstur Parísarhjóls.

Framlag borgarinnar til samstarfsins verði afnot af 725 fermetra lóð Faxaflóahafna í fyrirfram ákveðinn tíma. Þar ætti að vera hægt að koma fyrir 20 metra löngum vagni með Parísarhjóli og eru hæðartakmörk um 30 metrar.

Í auglýsingu eru einnig gerðar kröfur um að Parísarhjólið og annar búnaður þoli íslenskar aðstæður, þar með talið vindálag og jarðhræringar.