Samkvæmt Hafrannsóknastofnun hefur mælst mjög lítið af loðnu það sem af er febrúarmælingu. Önnur yfirferð loðnumælinga á árinu sé nú langt komin með þátttöku þriggja uppsjávarveiðiskipa.
Eftir stendur að fara yfir Vestfjarðamið en Heimaey og Polar Ammassak þurftu frá að hverfa þaðan um helgina vegna veðurs. Áætlað er að yfirferðinni ljúki á miðvikudaginn.
Ásgrímur Halldórsson lauk við sína yfirferð úti fyrir Norðaustur- og Austurlandi um helgina.
Gert er ráð fyrir frekari vöktun og yfirferð að þessum mælingum loknum en fyrirkomulag þeirra skýrist seinna í vikunni. Svæðin sem þá verður líklegast lögð áhersla á eru norðvestur af landinu og undan Vestfjörðum ásamt Suðausturmiðum.