Samkeppniseftirlitið og Festi hf. hafa undirritað sátt vegna kaupa Festi á öllu hlutafé í Lyfju hf.
Sáttinni er ætlað að ryðja úr vegi samkeppnishindrunum sem samruninn myndi annars leiða til að mati Samkeppniseftirlitsins.
Festi hf. rekur meðal annars verslanir Krónunnar, N1 og Elko. Lyfja rekur samnefnd apótek og heildsöluna Heilsu.
Að mati SKE skaraðist starfsemi samrunaaðila einkum á markaði fyrir smásölu hreinlætis- og snyrtivara og smásölu á heilsuvörum.
Samkvæmt sáttinni mun Heilsa ehf. starfa sjálfstætt með rekstrarlegum aðskilnaði frá Festi við heildsölu heilsuvara, m.a. með skýrum skilyrðum um vernd viðskiptaupplýsinga um keppinauta samstæðunnar.
Heilsu ber einnig að gæta jafnræðis og hlutlægni í viðskiptum við smásala. Falla skilyrðin úr gildi að fimm árum liðnum.
„Við rannsókn málsins lýstu keppinautar Festi og Lyfju í smásölu á þessum vörum yfir áhyggjum af skertu og ójöfnu aðgengi að mikilvægum heilsuvörum, sem skekkja kynni samkeppni á markaðnum. Vinna þessi skilyrði gegn slíkum áhrifum,” segir á vef Samkeppniseftirlitsins.
Fella niður samkeppnisbann á lyfjafræðinga
Þá er greint frá því að í vissum tilfellum skuldbindi lyfjafræðingar sig til þess að hefja ekki störf hjá samkeppnisaðila í tiltekinn tíma eftir að ráðningarsambandinu lýkur. Festi og Lyfja munu fella niður slík samkeppnisbönn í ráðningarsamningum lyfjafræðinga og ekki setja slík ákvæði í starfssamninga lyfjafræðinga hjá félaginu.
Ske segir að athuganir stofnunarinnar á samrunanum hafi leitt í ljós mikinn skort á lyfjafræðingum hérlendis.
„Hömlur á atvinnufrelsi þeirra vegna framangreindra samkeppnisbanna takmarka möguleika smærri keppinauta sem og nýrra aðila til þess að hefja eða útvíkka starfsemi.”
„Skilyrði sáttarinnar og aðgerðir Festi hafa að mati Samkeppniseftirlitsins jákvæð áhrif á samkeppni á apóteka- og dagvörumarkaði. Að mati Samkeppniseftirlitsins er sáttin fullnægjandi til þess að koma í veg fyrir möguleg skaðleg áhrif af yfirtöku Festi á Lyfju. Í því ljósi er samruninn því samþykktur með skilyrðum,” segir að lokum á vef Samkeppniseftirlitsins.