Síminn hagnaðist um 505 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1,4 milljörðum króna og hækkaði um 6,1% frá sama fjórðungi í fyrra. Tekjur annars ársfjórðungs námu ríflega 6 milljörðum króna, samanborið við 5,9 milljarða á sama tímabili árið áður. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri félagsins.
Vaxtaberandi skuldir Síma-samstæðunnar, að leiguskuldbindingum meðtöldum, námu 7,1 milljörðum króna í lok annars ársfjórðungs 2022 en voru 8,3 milljarðar í árslok 2021. Hreinar vaxtaberandi skuldir samstæðu, að leiguskuldbindingum meðtöldum, voru 5,7 milljarðar króna í lok annars fjórðungs, samanborið við 4,8 milljarða í árslok 2021. Eiginfjárhlutfall Símans var 44% í lok annars ársfjórðungs og eigið fé 29,9 milljarðar króna.
Orri Hauksson, forstjóri Símans:
„Rekstur Símans á öðrum fjórðungi ársins fylgir þeim fyrsta vel á eftir, þar sem bæði tekjur og EBITDA aukast. Sérstaklega vaxa farsímatekjur nú myndarlega milli ára, að hluta vegna aukinna ferðalaga til og frá landinu. Tekjur af sjónvarpi og interneti aukast einnig nokkuð. Rekstrarhorfur fyrir síðari hluta þessa árs eru jákvæðar.
Helstu kostnaðarliðir breytast lítið milli ára, en stór hluti kostnaðar Símans er fyrirsjáanlegur og byggist á langtímasamningum við innlenda og erlenda birgja. Gengisþróun hefur verið hagfelld, en verðbólga vegur á móti og mun gera það af auknum þunga það sem eftir lifir árs. Launakostnaður hækkar um tæp 5% milli ára á öðrum ársfjórðungi, að mestu vegna starfsloka. Búast má við nokkrum launahækkunum á næstu misserum. Að einhverju marki kemur það til vegna launaskriðs, auk þess sem komandi kjarasamningar eru stór óvissuþáttur í kostnaði félagsins á næsta ári.
Skipulagi Símans var breytt á fjórðungnum, með það að markmiði að stytta boðleiðir fyrirtækisins og bæta þjónustu við viðskiptavini. Tveir nýir framkvæmdastjórar tóku til starfa, þær Berglind Björg Harðardóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu, og Erla Ósk Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Sjálfbærni og menningar, og hafa þær nú þegar sett mark sitt á starfsemina með jákvæðum hætti.
Rekstur Mílu, dótturfélags Símans, gekk vel á fyrri helmingi ársins og skilaði félagið sambærilegri EBITDA afkomu og á sama tíma í fyrra. Síminn undirritaði kaupsamning við franska sjóðastýringarfélagið Ardian 23. október í fyrra, en niðurstaða kemst í söluferli félagsins í síðasta lagi 15. september næstkomandi, þegar lokafrestur í skoðun samkeppnisyfirvalda á kaupunum verður liðinn. Eins og fram kom í tilkynningu Símans til kauphallar 22. júlí síðastliðinn hefur verið samið við kaupanda félagsins um að söluverð Mílu lækki úr 78 milljörðum króna í 73 milljarða króna, auk annarra breytinga á kaupsamningnum. Síminn vonast enn til að kaup Ardian á Mílu verði heimiluð, enda hafa samkeppnisyfirvöld um langa hríð talið að sala Mílu til þriðja aðila sé jákvæð fyrir samkeppni, auk þess sem kaupin leiða til frekari fjárfestinga í fjarskiptainnviðum á Íslandi. Nýtt fyrirkomulag að sölu lokinni byggir á tryggum viðskiptasamningi Símans og Mílu og yrði hagfellt fyrir rekstur Símans og fyrir viðskiptavini Símans til framtíðar.“