Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur lagt á samtals 4,2 milljarða króna stjórnvaldssekt á Samskip vegna samráðsbrota félagsins á árunum 2008-2013. Samskip hefur fordæmt ákvörðun eftirlitsins og segjast ætla að leita allra úrræða sem því eru tæk að lögum til að fá henni hnekkt.

Málið snýr að samráði Eimskips og Samskipa á árunum 2008-2013. Rannsókn SKE á brotum Eimskips lauk með sátt félagsins við eftirlitið sumarið 2021 þar sem Eimskip féllst á að greiða 1,5 milljarða króna og skuldbatt sig til tiltekinna aðgerða.

Nú hefur SKE lokið rannsókn á hlut Samskipa í málinu og komist að þeirri niðurstöðu að flutningsfyrirtækið hafi með alvarlegum hætti brotið gegn samkeppnislögum og ákvæðum EES-samningsins.

„Þá er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Samskip hafi við rannsókn málsins brotið gegn 19. gr. samkeppnislaga með rangri, villandi og ófullnægjandi upplýsingagjöf og gagnaafhendingu.“

Ásamt 4,2 milljarða króna samanlagðrar stjórnvaldssektar hefur SKE lagt fyrir Samskip að grípa til tiltekinna aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir frekari brot og efla samkeppni.

„Samráðið í heild sinni var til þess fallið að gera fyrirtækjunum kleift að draga með afdrifaríkum hætti úr samkeppni og hækka eða halda uppi verði gagnvart viðskiptavinum fyrirtækjanna, t.d. með hækkun við endurnýjun samninga, hækkun á gjaldskrám og þjónustugjöldum, upptöku nýrra gjalda, lækkun afslátta o.s.frv. Sameiginleg yfirburðastaða Eimskips og Samskipa á markaðnum, samskipti stjórnenda fyrirtækjanna og aðrir þættir í samráði fyrirtækjanna sköpuðu kjöraðstæður fyrir fyrirtækin til að ná árangri í samráðinu og hagnast á kostnað viðskiptavina og samfélagsins alls,“ segir í ákvörðuninni.

Segja ályktanir með öllu tilhæfulausar

Samskip hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem flutningafélagið hafnar niðurstöðu rannsóknar SKE á ætluðu samráði Eimskips og Samskipa á árunum 2006 til 2013.

„Ályktanir um víðtækt og þaulskipulagt samráð eru með öllu tilhæfulausar og úr tengslum við gögn og staðreyndir. Samskip fordæma vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins við rannsóknina og hyggjast fá niðurstöðunni hnekkt. […] Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins einkennist af hálfsannleika, villandi framsetningu og rangfærslum.“

Samskip segja að starfsemin hafi ávallt grundvallast á samkeppni á öllum mörkuðum og félagið sé leiðandi í að skapa virka samkeppni og hagkvæmar lausnir í flutningum og tengdri þjónustu.

Málsgögn SKE tugþúsundir blaðsíðna

Samskip benda á að rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi að grunni til staðið frá árinu 2010. Ráðist var í húsleitir hjá Samskipum og Eimskipi á árunum 2013 og 2014 og hald lagt á mikið magn gagna. Frá húsleit 2013 séu liðin tíu ár.

„Kenningar og ályktanir Samkeppniseftirlitsins urðu svo fyrst ljósar þegar fyrirtækjunum var birt andmælaskjal í tveimur hlutum um ætluð samráðsbrot. Fyrri hluti skjalsins var birtur 6. júní 2018 en sá síðari 13. desember 2019. Voru þá liðin sex ár frá húsleit og nær tíu ár frá upphafi rannsóknar. Undir lok nóvember 2020 bættist svo við þriðja andmælaskjalið og skiluðu Samskip athugasemdum í janúarbyrjun 2021.“

Samanlagt voru andmælaskjöl SKE á þriðja þúsund blaðsíður og fylgiskjöl skiptu tugum þúsunda að því er segir í yfirlýsingu Samskipa.

Umhugsunarvert ef ráðandi fyrirtæki geti keypt sig frá frekari málsmeðferð

Samskip segist hafa skilað ítarlegum efnislegum athugasemdum við andmælaskjölin og sýnt fram á að frumniðurstöður SKE hafi í grundvallaratriðum verið rangar. Fyrir liggi að Eimskip hafi lokið málinu með sátt við SKE í júní 2021 „þrátt fyrir að hafa áður haft uppi hörð andmæli gegn málsmeðferð og efnislegum ályktunum Samkeppniseftirlitsins“.

„Samskip telja ljóst að ákvörðun Eimskips hafi ekki byggt á efni málsins heldur mati nýrra stjórnenda félagsins á því hvað væri farsælast fyrir rekstur þess næstu árin. Umhugsunarefni er ef ráðandi fyrirtæki á markaði getur með þessum hætti notað digra sjóði til að kaupa það frá frekari málsmeðferð.“

Samskip segja einnig alvarlegt ef löng og þung málsmeðferð og miklar valdheimildir eftirlitsstjórnvalda geti orðið til þess að fyrirtæki kjósi heldur að játa sök og greiða sekt, án þess að efni séu til, en að leiða hið rétta og sanna í ljós fyrir æðra stjórnvaldi eða dómstólum.

Samkeppniseftirlitið farið offari

Samskip segjast ekki ætla að una niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og mun félagið leita allra úrræða sem því eru tæk að lögum til að fá henni hnekkt.

„Vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins í málinu eru Samskipum mikil vonbrigði. Málsmeðferðin hefur verið einstaklega þung og haft lamandi áhrif á starfsemi og starfsfólk Samskipa. Stofnunin hefur farið offari við rannsókn málsins og gagnaöflun og hefur nú komist að niðurstöðu sem ekki er í nokkrum tengslum við raunveruleikann.

Settar eru fram kenningar og ályktanir um brot án þess að beinum sönnunargögnum sé til að dreifa. Kenningum hefur verið fundin stoð með því að fara beinlínis rangt með efni gagna eða staðreyndir máls eða með augljósum rangtúlkunum.“