Þrotabú WOW air hefur höfðað ellefu riftunarmál vegna greiðslna til kröfuhafa í aðdraganda gjaldþrots flugfélagsins í mars 2019.
Skúla Mogensen, fyrrum forstjóra flugfélagsins og eiganda, er stefnt til greiðslu skaðabóta í öllum málunum en fyrrverandi stjórnendum er stefnt í níu málunum en FF7 greindi fyrst frá.
Lögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson eru skiptastjórar þrotabúsins en umræddir stjórnarmenn eru Liv Bergþórsdóttir, stjórnarformaður og Helga Hlín Hákonardóttir og Davíð Másson.

Öll málin eiga sér langan aðdraganda en þrotabúið höfðaði mál upphaflega árið 2020 fyrir héraðsdómi en öll málin hafa farið fram og til baka í dómskerfinu þar sem tekist hefur verið á um vanhæfi dómara, frávísun o. fl.
„Það er búið leika alla leiki sem hægt er að hugsa sér en nú er málið loksins komið á endastöð og málflutningur verður í október,“ segir Þorsteinn skiptastjóri í samtali við Viðskiptablaðið.
Sækja milljarða í bætur
Öll ellefu málin snúa að því að rifta greiðslum sem áttu sér stað skömmu fyrir gjaldþrotið.
Að sögn skiptastjóra var kröfuhöfum mismunað, þar sem tilteknum kröfuhöfum var greitt en öðrum ekki, en slíkt er brot á lögum um gjaldþrotaskipti.
Þrotabúið krefst þess að öllum greiðslum verði rift og að stjórnendur greiði skaðabætur fyrir sömu upphæð. Um er að ræða hátt í tveggja milljarða króna bætur auk dráttarvaxta.
Að sögn Þorsteins er búið að taka frá um þrjár vikur í málflutning í haust.