Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í þingkosningunum í Bretlandi í gær en samkvæmt talningu næturinnar stefnir í að flokkurinn verði með um 410 þingmanna meirihluta á breska þinginu.
Rishi Sunak, forsætisráðherra, sem boðaði óvænt til kosninga fyrir sex vikum, viðurkenndi ósigur í nótt en Íhaldsflokkurinn fékk sína verstu útreið frá upphafi og endaði með 119 þingmenn, og tapar þannig 248 þingsætum. Frjálslyndir demókratar fengu 71 þingsæti.
Keir Starmer formaður Verkamannaflokksins verður næsti forsætisráðherra Bretlands.

Fjölmargir meðlimir í ríkisstjórn Rishi Sunak héldu ekki þingsætum sínum í nótt samkvæmt BBC, þar á meðal Alex Chalk dómsmálaráðherra, Grant Shapps varnarmálaráðherra, Gillian Keegan menntamálaráðherra, Michelle Donelan vísindaráðherra og Lucy Frazer menningarmálaráðherra.
Liz Truss fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands tapaði þingsæti sínu í suðvestur Norfolk með 630 atkvæðum. Terry Jermy, frambjóðandi Verkamannaflokksins tekur sæti Truss.
Jeremy Hunt fjármálaráðherra hélt þingsæti sínu með naumindum en um tíma gáfu útgáfuspár annað til kynna.
„Verkamannaflokkurinn hefur sigrað þessar kosningar,“ sagði Rishi Sunak í nótt á kosningavöku Íhaldsflokksins. Hann sagðist hafa hringt í Starmer og óskað honum til hamingju með sigurinn.
Sunak hélt þingsæti sínu í Richmond og Northallerton kjördæminu í Yorkshire. Hann sagði í nótt að hann tæki fulla ábyrgð á ósigri flokksins og að hann myndi ávarpa landsmenn aftur þegar hann væri kominn til Lundúna áður en hann víki úr embætti.